Síðustu dagar hafa verið viðburðaríkir og hefur veðrið leikið við okkur hérna í borginni.
Á mánudaginn fengum við heimsókn frá danskennurum úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru og fóru krakkarnir í nokkra dansleiki. Eftir hádegi fórum við svo í sund í Laugardalslaug í sól og blíðu.
Á þriðjudag fengum við að fara í heimsókn í Smárabíó þar sem við fengum að skoða sýningarvélarnar og sýndu starfsmenn okkur filmurnar sem eru notaðar í sýningavélarnar. Þegar skoðunarferðinni var lokið fengum við svo popp og svala meðan við horfðum á nokkur sýnishorn úr væntanlegum myndum. Börnin voru svo kvödd með gjöfum.
Í dag gerðum við smá breytingu á dagskránni en í stað þess að fara í öskjuhlíðina þá fórum við í Hljómskálagarðinn og lékum okkur í leiktækjum þar og grilluðum sykurpúða.
Á fimmtudaginn ætlum við svo að setja upp hoppukastala og á föstudaginn endum við námskeiðið á því að fara í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þar sem við ætlum að skoða dýrin, leika okkur í tækjunum og grilla pylsur.
No comments:
Post a Comment