Búið að ganga rosa vel og allir virðast vera rosa ánægðir.
Fyrstu dagarnir hafa aðallega farið í leiki og vettvangsferðir. Í gær fórum við í Laugardalslaugina í sund og í dag förum við í fjöruferð. Þar ætlum við að velta við steinum og finna einhverjar lífverur. Börnin munu safna merkilegum hlutum í poka og taka með sér heim þannig að ekki láta það koma ykkur á óvart ef þið finnið eitthvað skríðandi heima hjá ykkur í kvöld;)
Á fimmtudaginn fóru krakkarnir í fjársjóðsleit en fyrir leitina fengu þau að heyra söguna af því hvernig sjóræningjarnir í Tyrkjaráninu komu fyrir langa löngu á land að sveitabænum á Hlíðarenda og grófu gullið sitt á túninu. Bóndinn að Hlíðarenda læddist út að næturlagi og gróf upp gullið og stal megninu af því. Afgangar af gullinu hafa legið á lóð Hlíðarenda síðan þá og fóru krakkarnir út og týndu það upp. Enn má finna leifar af gullinu ef einhverjir foreldrar hafa áhuga.
Núna í morgun voru handboltatengdir leikir á dagskránni inni í sal og núna eftir kaffi fóru krakkarnir út í port í veggjakrot. Hvetjum við til þess að börnin vandi sig við myndirnar og verður viðurkenning fyrir listsköpunina.
Að lokum viljum við minna foreldra á að muna að skrá börnin inn og út hjá starfsmönnum sumarbúðanna/knattspyrnuskólans. Það er okkur mikilvægt að vita alltaf hvar börnin eru.
No comments:
Post a Comment