Tuesday, June 12, 2012

Breyting á dagskrá

Því miður verðum við að gera smá breytingu á dagskrá fyrir morgundaginn (miðvikudag). Ég er búinn að uppfæra dagskrána í flipanum.

Skemmtiferðabáturinn Jónas Feiti er bilaður og því komumst við ekki í siglinguna á morgun. Í staðinn ætlum við annað hvort í bæjarferð eða fara í öskjuhlíðina. Það er svo möguleiki að við getum farið í bátsferðina á föstudaginn í staðinn þannig að endilega fylgist með dagskránni hér á blogginu. Við uppfærum stöðuna jafn óðum.

No comments:

Post a Comment