Thursday, June 14, 2012

Sigling föstudag

Sú breyting sem við gerðum á dagskránni fyrr í vikunni endar þannig að síðasta dag sumarbúðanna munum við fara í siglingu á Jónasi Feita í Nauthólsvík kl. 13:30. Klæðið börnin eftir veðri. Það er svo hefð að starfsmönnum er hent út í sjó.

Að lokinni siglingu mun leynigestur mæta á svæðið og veita viðurkenningarskjöl fyrir ýmsar keppnir og fá allir kveðjugjöf frá starfsfólkinu í sumarbúðunum.

Ég er núna að uppfæra myndir frá námskeiðinu og getið þið fundið þær í hlekknum í stikunni efst á síðunni. Mun svo uppfæra fleiri myndir að loknum morgundeginum. Ég ákvað að færa allar myndir inn á facebook og endilega sendið beiðni í gegnum þá síðu til þess að gerast meðlimir að henni http://www.facebook.com/groups/430303907003379/

Um leið og ég vill þakka öllum fyrir þátttökuna á námskeiðinu þá vill ég benda á að opið er fyrir skráningar á námskeið 2 hjá okkur en skráningar í það hafa farið vel af stað. Það námskeið verður með svipuðu sniði með einhverjum breytingum þó.


No comments:

Post a Comment