Thursday, June 21, 2012

Hjólreiðatúr

Á morgun föstudag ætlum við í hjólreiðatúr eftir hádegi í Nauthólsvíkina. Allir krakkar eiga að mæta með hjól og hjálm. Passið vel að klæða börnin eftir veðri en það hefur rignt duglega á okkur í dag og ekki allir krakkar hafa verið klæddir til útiveru.

Síðustu tvo daga heimsóttum við slökkviliðið í Reykjavík og Landhelgisgæsluna. Við fengum að sjá slökkviliðsbílana og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Krakkarnir voru þó spenntastir fyrir einhverjum vinnubíl enda var það eina græjan sem þau fengu að fikta í og snerta. Myndir frá síðustu dögum má finna í hlekknum hér að ofan merkt "myndir"

No comments:

Post a Comment