Tuesday, June 19, 2012

Myndir af námskeiðum

Við erum í dag að klára að hlaða inn myndum af námskeiði 1 inn á facebook síðuna okkar.

Seinna í vikunni munu svo koma inn myndir af námskeiði 2. Námskeiðið fer vel af stað hjá okkur og virðast allir krakkarnir vera mjög ánægðir. Endilega fylgist vel með dagskránni svo að börnin geti verið rétt útbúin.

Á föstudaginn nk. (22. júní) förum við í hjólaferð eftir hádegi og þá er nauðsynlegt að allir taki með sér hjól og hjálm. Hjólatúrinn verður alls ekki langur og því ættu allir að geta tekið þátt.

Í gær voru krakkarnir í allskonar nafna- og hópeflisleikjum fyrir hádegi og eftir hádegi fór hópurinn á Klambratún í leiki. Í dag var fjársjóðsleit og leikir fyrir hádegi. Eftir hádegi var planað að fara í göngutúr í Þjóðminjasafnið en við höfum ákveðið að halda áfram í leikjum inni í sal í dag þar sem hitastigið er ekkert sérstaklega hátt útivið.

No comments:

Post a Comment