Monday, June 18, 2012

Velkomin á námskeið 2

Velkomin á námskeið 2 í Sumarbúðum í borg.

Við erum dugleg að uppfæra síðuna og hvetjum við foreldra til þess að vera duglegir að fylgjast með. Bendum líka á flipana hér fyrir ofan þar sem er að finna myndasíðu okkar á facebook, dagskrá, matseðil o.fl. Ath. að dagskráin sem er inni núna á eftir að breytast eitthvað.

Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga.


  • Það er kútaskylda í sundferðum. Við getum ekki ábyrgst að nóg sé til af lánskútum í sundlaugunum og því hvetjum við alla að taka með sér kúta. BÖRNIN FÁ EKKI AÐ FARA OFAN Í LAUGINA ÁN KÚTA.
  • Börnin fá heitan mat í hádeginu í Valsheimilinu sem er innifalið í verði. Þá daga sem við erum í Fjölskyldu og húsdýragarðinum þá fá börnin að borða þar.
  • Við erum með tvo nestistíma á dag. Milli 10:15-10:45 og 14:15-14:45. Best er að börnin hafi með sér létta bakpoka undir nestið.
  • Það er hjálmaskylda í hjólreiðaferðum.
  • Krakkar sem eru skráðir í bæði fótboltaskólann og sumarbúðir eru í fótboltaskólanum fyrir hádegi og í sumarbúðum eftir hádegi.
  • Krakkarnir fara alltaf í ferðir eftir hádegi að undanskyldum síðasta degi búðanna. 
  • Þeir krakkar sem eru á æfingum eftir hádegi geta valið á milli þess hverju sinni hvort þau vilji fara með í ferðir eða vera á æfingum. Starfsmaður sumarbúða mun fylgja þeim krökkum sem eru á æfingum og er möguleiki að sameinast við hópinn á ný ef um styttri ferð er að ræða. Ekki er mögulegt að sameinast við hóp í lengri ferð ef barnið velur að fara á æfingu og þá mun myndast dauður tími í tvær klukkustundir. Við mælum því með að allir fari með í lengri ferðir.

No comments:

Post a Comment