Síðustu dagar hafa verið viðburðaríkir og hefur veðrið leikið við okkur hérna í borginni.
Á mánudaginn fengum við heimsókn frá danskennurum úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru og fóru krakkarnir í nokkra dansleiki. Eftir hádegi fórum við svo í sund í Laugardalslaug í sól og blíðu.
Á þriðjudag fengum við að fara í heimsókn í Smárabíó þar sem við fengum að skoða sýningarvélarnar og sýndu starfsmenn okkur filmurnar sem eru notaðar í sýningavélarnar. Þegar skoðunarferðinni var lokið fengum við svo popp og svala meðan við horfðum á nokkur sýnishorn úr væntanlegum myndum. Börnin voru svo kvödd með gjöfum.
Í dag gerðum við smá breytingu á dagskránni en í stað þess að fara í öskjuhlíðina þá fórum við í Hljómskálagarðinn og lékum okkur í leiktækjum þar og grilluðum sykurpúða.
Á fimmtudaginn ætlum við svo að setja upp hoppukastala og á föstudaginn endum við námskeiðið á því að fara í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þar sem við ætlum að skoða dýrin, leika okkur í tækjunum og grilla pylsur.
Sumarbúðir í borg
Wednesday, June 27, 2012
Sunday, June 24, 2012
Sundferð
Minni alla á sundferðina á morgun. Kútar eru skylda. Ef þið eigið ekki kúta þá fá börnin lánaða kúta í Laugardalslaug
Thursday, June 21, 2012
Hjólreiðatúr
Á morgun föstudag ætlum við í hjólreiðatúr eftir hádegi í Nauthólsvíkina. Allir krakkar eiga að mæta með hjól og hjálm. Passið vel að klæða börnin eftir veðri en það hefur rignt duglega á okkur í dag og ekki allir krakkar hafa verið klæddir til útiveru.
Síðustu tvo daga heimsóttum við slökkviliðið í Reykjavík og Landhelgisgæsluna. Við fengum að sjá slökkviliðsbílana og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Krakkarnir voru þó spenntastir fyrir einhverjum vinnubíl enda var það eina græjan sem þau fengu að fikta í og snerta. Myndir frá síðustu dögum má finna í hlekknum hér að ofan merkt "myndir"

Tuesday, June 19, 2012
Myndir af námskeiðum
Við erum í dag að klára að hlaða inn myndum af námskeiði 1 inn á facebook síðuna okkar.
Seinna í vikunni munu svo koma inn myndir af námskeiði 2. Námskeiðið fer vel af stað hjá okkur og virðast allir krakkarnir vera mjög ánægðir. Endilega fylgist vel með dagskránni svo að börnin geti verið rétt útbúin.
Á föstudaginn nk. (22. júní) förum við í hjólaferð eftir hádegi og þá er nauðsynlegt að allir taki með sér hjól og hjálm. Hjólatúrinn verður alls ekki langur og því ættu allir að geta tekið þátt.
Í gær voru krakkarnir í allskonar nafna- og hópeflisleikjum fyrir hádegi og eftir hádegi fór hópurinn á Klambratún í leiki. Í dag var fjársjóðsleit og leikir fyrir hádegi. Eftir hádegi var planað að fara í göngutúr í Þjóðminjasafnið en við höfum ákveðið að halda áfram í leikjum inni í sal í dag þar sem hitastigið er ekkert sérstaklega hátt útivið.

Monday, June 18, 2012
Velkomin á námskeið 2
Velkomin á námskeið 2 í Sumarbúðum í borg.
Við erum dugleg að uppfæra síðuna og hvetjum við foreldra til þess að vera duglegir að fylgjast með. Bendum líka á flipana hér fyrir ofan þar sem er að finna myndasíðu okkar á facebook, dagskrá, matseðil o.fl. Ath. að dagskráin sem er inni núna á eftir að breytast eitthvað.
Nokkur atriði sem þarf að hafa í huga.

- Það
er kútaskylda í sundferðum. Við getum ekki ábyrgst að nóg sé til af
lánskútum í sundlaugunum og því hvetjum við alla að taka með sér kúta.
BÖRNIN FÁ EKKI AÐ FARA OFAN Í LAUGINA ÁN KÚTA.
- Börnin
fá heitan mat í hádeginu í Valsheimilinu sem er innifalið í verði. Þá daga
sem við erum í Fjölskyldu og húsdýragarðinum þá fá börnin að borða þar.
- Við
erum með tvo nestistíma á dag. Milli 10:15-10:45 og 14:15-14:45. Best
er að börnin hafi með sér létta bakpoka undir nestið.
- Það
er hjálmaskylda í hjólreiðaferðum.
- Krakkar
sem eru skráðir í bæði fótboltaskólann og sumarbúðir eru í
fótboltaskólanum fyrir hádegi og í sumarbúðum eftir hádegi.
- Krakkarnir
fara alltaf í ferðir eftir hádegi að undanskyldum síðasta degi
búðanna.
- Þeir
krakkar sem eru á æfingum eftir hádegi geta valið á milli þess hverju
sinni hvort þau vilji fara með í ferðir eða vera á æfingum. Starfsmaður
sumarbúða mun fylgja þeim krökkum sem eru á æfingum og er möguleiki að
sameinast við hópinn á ný ef um styttri ferð er að ræða. Ekki er mögulegt
að sameinast við hóp í lengri ferð ef barnið velur að fara á æfingu og þá
mun myndast dauður tími í tvær klukkustundir. Við mælum því með að allir
fari með í lengri ferðir.
Friday, June 15, 2012
Kveðjugjöf
Þeir krakkar sem ekki voru í sumarbúðunum á föstudag geta nálgast viðurkenningar og gjafapakka frá okkur í afgreiðslunni í Valsheimilinu.
Takk fyrir þátttökuna á námskeiðinu og gleðilegt sumar.
Kveðja, starfsfólk.
Thursday, June 14, 2012
Sigling föstudag
Sú breyting sem við gerðum á dagskránni fyrr í vikunni endar þannig að síðasta dag sumarbúðanna munum við fara í siglingu á Jónasi Feita í Nauthólsvík kl. 13:30. Klæðið börnin eftir veðri. Það er svo hefð að starfsmönnum er hent út í sjó.
Að lokinni siglingu mun leynigestur mæta á svæðið og veita viðurkenningarskjöl fyrir ýmsar keppnir og fá allir kveðjugjöf frá starfsfólkinu í sumarbúðunum.
Ég er núna að uppfæra myndir frá námskeiðinu og getið þið fundið þær í hlekknum í stikunni efst á síðunni. Mun svo uppfæra fleiri myndir að loknum morgundeginum. Ég ákvað að færa allar myndir inn á facebook og endilega sendið beiðni í gegnum þá síðu til þess að gerast meðlimir að henni http://www.facebook.com/groups/430303907003379/
Um leið og ég vill þakka öllum fyrir þátttökuna á námskeiðinu þá vill ég benda á að opið er fyrir skráningar á námskeið 2 hjá okkur en skráningar í það hafa farið vel af stað. Það námskeið verður með svipuðu sniði með einhverjum breytingum þó.

Subscribe to:
Comments (Atom)